22. mar. 2007



Veit einhver um einhvern sem ætlar að flytja til Íslands í sumar og ætlar að taka með sér 1 stk. gám? Þá væri ég nefnilaga alveg svakalega til í að fá að stinga eins og einum eða tveimur hjólum með. Mig langar svo að eiga fallegt hjól. Ég viðurkenni hér með að ég er meirháttar sökker fyrir fallegum hjólum. Eflaust eru margir sem þykja minn smekkur minna fagur en ég elska ömmuhjólin og þrái eitt slíkt af öllu hjarta. Og ég hef ákveðið að ef mér tekst ætlunarverkið þá ætla ég að launa mér með einu slíku. En mig vantar að flytja það heim. Það væri ágætt ef fólk vissi af fari að ég fengi að pota einu til tveimur hjólum með í gegn vægu gjaldi.

4 ummæli:

Heiðrún sagði...

Ég skal taka hjól með fyrir þig elskan, þó það nú væri!
Og ef þú ert eitthvað að spá í hinu, sem við töluðum um um dagin, þá segi ég bara Lundur, hundur....

Regína sagði...

eru hjól ekki ódýrari á Íslandi?

Frú Elgaard sagði...

Það eru bara ekki til hjól eins og mig langar í sjáiði til... Mig langar í ömmuhól með góðum hnakki með 3 - 7 gírum og ekkert meir. En á Íslandi eru endales 3255411 gíra toffæru spítthjól sem ég persónulega þoli ekki.

Frú Elgaard sagði...

Elsku Heiðrún ertu að koma heim? Skil ég það rétt. vá jíbííí. En Lundur er ágætis hundu já.