22. feb. 2006

Kanski sting ég mér niður á Hringbraut á eftir og næli mér í nokkra pappakassa. Andinn er að koma yfir mig. Jáááákvæðir straumar... jááákvæðir straumar. Vildi óska að ég gæti bímað allt dótið á Suðrgötuna og bara "pling" allt í einu sæti ég sæt og rjóð með latte að lesa kerlingatímarit borðandi flöðebollu í rauða húsinu. En nei veruleikinn er annar. Blóð, sviti og tár, hlandvolgt soðið bónus fokking kaffi, hrískaka, kúkableyja. En ætli maður verði ekki bara sáttari fyrir vikið. Segjum það bara.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

úff hvað ég skil þig..... góðir straumar til þín og þinna...