3. nóv. 2005

Ég er er kona, mikil og löt. Nenni ekki að þrífa en hlakka til morgundagsins vil bara borða, drekka og sofa líkt og ungabarn. Ég er með dónalega stór brjóst ... glatað. Passa ekki enn í fötin mín. glatað. er að hugsa um að fara í fitusog ... djók.
Eins gott að það er saumó hjá mér á morgun og ég get fengið mér mæjónesu og rauðvín. Ég held ég haldi mig bara við Álfinn álfakóng lúkkið fram yfir jól og er hér með hætt að kvarta opinberlega. Dreg mig inn í skápinn með þetta þangað til að ég fer að taka til í honum eftir jólaátið.
Já og ef þið vitið það ekki þarna islensku danir, þá sakna ég ykkar geðveikt og vil fá ykkur til mín. Og við óli erum búin að ákveða að það má enginn flytja eithvað langt út í úthverfi. Það er glatað og hlýðiði nú greiin mín.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

við komum við komum árið 2010

Heiðrún sagði...

er laust herbergi hjá ykkur í hlíðunum?