2. jún. 2005

Talvan og ég erum ekki vinkonur í dag hún vill ekki gera eins og ég segi!

Efiður dagur allt á afturlöppunum í skólanum, brjóstsviði og þreyta, rugl i reikningum og skatturinn aftur farinn að bulla.

Nenni ekki vesini ég vil bara að hlutirnir gangi.

Nenni ekki að hafa fyrir þeim. Ég er löt, lata kata! Ömurlegt

En sjáum nú til.... ég er að verða komin í barneignafrí, Mamma og pabbi ætla að kíkja við bráðum. Ormakrukkan kemur lika bara eftir 12 daga og ég er að verða hluti af fjögramanna fjölskyldu. Dóttir mín er yndisleg og dugleg og ég og maðurinn erum enn ástfangin. haha, ég sé það, lífið leikur við mig!!!

Engin ummæli: