27. jún. 2005

Sumarfrí er bara gott. Nú erum við með eina dömu í láni því M er ekki alveg að meika það að vera ein með foreldrum sínum!!! hhehe En þær stöllur eru svo miklar vinkonur að það er eiginlega auðveldara að vera með þær tvær saman en bara M. Við vorum að hugsa um að stela henni bara og eiga tvær stelpur. M leist rosa vel á þessa hugmynd en S var svolítið hissa en sagði svo að mamma sín og pabbi ættu hana! ehehe En við gátum platað út úr henni eina stóru tá með því skilirði að við dóneruðum eina stóru tá af M til foreldra hennar! hehehe Og í dag er stefnt á Amagerfellet út í náttúruna með plastbox að týna snigla og kongulær.

Engin ummæli: