17. jún. 2005

Áðan bað ég dóttur mína um að gera mér greiða! Já mamma sagði hún ég skal gera það og hljóp í burtu án þess að ég hafi geta borið framm erindi mitt. Hún kom til baka skæl brosandi með bursta og er að greiða mér!! hihihih, nú ég er að fara yfir dagblöðin og skyldu bloggið og sit hér á brókinni einni fatar og enn með leifar af stríðsmálingu gærkvöldsins. Í gær kvöldi fór ég semsagt á skólaball. Loka ballið, það var nú upplifelsi út af fyrir sig. Ég hélt einhvernveginn að ég væri nú ekki svo gömul að geta skemmt mér hvar sem er við hvaða MÚSSÍK sem er. En nei það get ég ekki, þarna var spilað endalaust graðhesta rapp um einhverja pimpa sem ætla drepa mann og annan og svo að ná sér i eithvað slöttið á eftir til að taka doggy stæl!!! Þetta var í lagi í hálf tíma en eftir að þessi mússík virtist hafa of örfandi áhrif á testosteron nokkura míní uxa ákvað ég nú bara að láta mig hverfa og halda mig við rokkið hér eftir! Þó að ég sé með stóran rass og geti hrisst hann þá fýla ég bara ekki þessa mússík.
Og nú sit ég semsagt á brókinni hér og dóttir mín er búin að greiða mér og skreita mig eins og hún segir. Það felst í því að stinga tússpennum í strenginn á brókinni... mjög smart!
Já og Gleðilega þjóðhátíð! hip hip húrrra!

Engin ummæli: