8. maí 2007


Við hjónin fórum á grímuball á laugardaginn. Það var mjög skemmtilegt. Ég elska grímuböll. Ég veit ekki hvort fólk fattar búningin en getið nú... Annars fórum við svo á leiksýningu á sunnudagskvöldið og sáum Mr. Skallagrímsson. Æðislegt leikrit ég mæli með því. En um nóttina vaknaði Mathilda alblóðug og þá hafði rifnað aðeins frá sárinu og við þurftum að gista á sjúkrahúsinu þá nóttina. Konan litla er eldhress í dag og heima með pabba sínum að reyna að hamast ekki. Það er pínu erfitt fyrir hana vegna þess að hún er að fá svo mikla orku núna og borðar og borðar. En að sjá barnið alblóðugt á sunnudagsnóttina er eitthvað sem ég kem til að gleyma seint eða aldrei úff...

14 ummæli:

bjorn sagði...

dr house og marilyn?

Frú Elgaard sagði...

mmmm Neibb

Ólöf sagði...

mér dettur ekkert í hug, en djö eruð þið flott hahaha. Þetta hljómar nú annars ekki vel með Matthildi, guð hvað ég skil hræðsluna, úff.

Regína sagði...

Barbara Cartland og hmmm...slasaði maðurinn?

Heiðrún sagði...

Anna nicole smith og gamli karlinn hennar, man ekki hvað hann heitir...

Frú Elgaard sagði...

Einmitt Heiðrún Anna Nicole Smith og James Howard Marshall II. hehehehe

Nafnlaus sagði...

He, he, bara snilld...þið eruð ótrúlega flott...

...úff ég hefði fengið nett áfall ef é hefði komið að dóttur minni alblóðugri....ég skil þetta ekki mér finnst ég verða viðkvæmari með árunum!!

Heiðrún Hámundar

Pollyanna sagði...

Úff það ekkert verra en þegar það er eitthvað að hjá börnunum manns. Gott að það sé allt í lagi núna.

bjorn sagði...

heiðrún, þú hefðir átt að verða leynilögga.

Heiðrún sagði...

er það of seint, heldurðu Ingibjörg?

Frú Elgaard sagði...

Það er sko aldrei of seint að gerast leynilögga sko held ég ha... Inspector Olafsdottir... jamm kan vel viða

bjorn sagði...

nei bara kýla á það
beint í lögguskólann þegar heim er komið og svo bara áfram og áfram
þar til einn daginn að þú býður okkur almúganum í veislu í tilefni þess að þú ert fyrst kvenríkislöggustjórinn.
áfram inspector ólafsdóttir!

Regína sagði...

hei hvað er að frétta?

Nafnlaus sagði...

Hefur ekkert gerst í lífi ykkar síðan á þessu grímuballi? Hvað hafa t.d fallegu litlu frænkur mínar verið að bedrífa? Ætla þær kannski að koma í heimsókn um helgina?