20. mar. 2006

Er komin í vinnu, búin að fá tengdó í heimsókn, flutt í æðislegt hús komin með nýjan síma, hjóla allt sem ég vil, búin að fara á ráðstefnur, vinn við skrifborð með svölum, R er heima hjá pabba sínum, fer á tónleika, leikhús, afmæli með öllum hetjum unglingsáranna, M leikur sér við stúlkuna á efrihæðinni, bróðir minn er uppfinningamaður, meiri afmæli ráðstefnur og já jafnvel utanlandsferð er í sigtinu. Ekki furða þó ég hafi ekki tíma til að skrifa.
R er samt með hita, hef áhyggjur af því.
Lífið er bara mjög gott.

3 ummæli:

SL sagði...

Til hamingju með allt saman!
Vonandi batnar Regínu fljótt!

Bippi sagði...

Frábært að lesa svona jákvæða færslu....gott að þér líður vel Kata mín;)

Frú Elgaard sagði...

Jamm, píhi ég er glöð í hjarta þrátt fyrir bítandi frost og veikt barn!