24. júl. 2007

Ég er alein heima, það er svolítið skrítið að vera alein. Ég hef ekki verið ein í lengur en sólarhring heima hjá mér í 6 ár. Það er svolítið skrítið að hugsa út í það. Ég hef ljómandi gott af því og finnst það mjög spennó en mér leiðist pínu að fara ein að sofa í þögninni. Þá langar mig að kyssa mjúkar litlar fætur og sakna jafnvel hrotur eiginmannsins... eða næstum því sko...

4 ummæli:

SL sagði...

Ég hef bara eitt að segja; Njóttu þess!!!!

Pollyanna sagði...

Já segi það sama og SL njóttu þess!!! Það verður líka enn betra þegar þú hittir fjölskylduna aftur.

Frú Elgaard sagði...

Jam ég ætla að gera það.

Nafnlaus sagði...

Hæ. Fékksu sms frá mér? Þú þarft að hafa samband vegna Skorradalsskálann. Átt hann pantaðan á meðan þú ert úti!!!!!!!!!