
Ég er með feituna og ljótuna á hæsta stigi í dag. Ég hef ekki lést í þrjá daga. oooh. Ég vil léttast eins og skot. Ég nenni þessu ekki. Ég ætla að fara í fitusog. Var að pæla hvort ég gæti notað ryksuguna í það... nei ég verð víst bara að fara að hlaupa. Eins gott að ég er að fá aðhaldsherforingjann móðir mína í kvöld. Ég treysti á að hún verði minn einkaþjálfari og fæðu ráðgjafi. Sjálf segist hún ætla að drekka bjóra allan tímann. Það er ekki alveg réttlátt.
7 ummæli:
endalaust til hamingju með nýju litlu, ég hlakka til að hitta ykkur þegar þið komið til íslands, - er það ekki annars í bígerð?
olla
jú erum flutt í Drápuhlíð, þér er hérmeð boðið í kaffi med det samme.
ég ætti kanske að koma mér til Ísland fyrst... allavega erum við í Drápuhlíð 18 eftir 19 sept... Chr. er fluttur inn nú þegar!
Danski "kúrinn" svínvirkar
Stórir rassar eru í tísku.
Varðandi spurninguna á orminum þá er svarið já já já já já já já .
kv ormurinn
Til hamingju Kata mín! Hún er algjört æði! Það væri gaman að hittast þegar þið komið heim!!
jú bett, saumó sem fyrst. Pínum Sollu til að halda!! heheh
Skrifa ummæli