30. júl. 2005

Í gær fór ég í partý til SL. Mjög skemmtilegt það. Þar voru mér boðin frjáls afnot af eignmanni annarar til þess að koma fæðingunn í gang!! pihihihih, nemahvað að sá hin sami var dissaður gjörsamlega af spússu sinni með því að hún tilkynnti að hann væri nú ekkert sérlega góður í þessu, sko þegar ég tók vel í tillöguna. Hann er sko alveg ungur, undir þrítugt og bara myndarlegur. En spússan sæta bætti við að hún var ekki að dissa frammistöðu mannsíns heldur bara að meina að sjálf gekk hún 12 daga fram yfir þannig að. En heheheh mér var skemmt.

Núna í dag er mér flögurt og er með strengi niður eftir innanverðum lærunum og hef það á tilfinningunni að ég sé með melónu með göddum í pissublöðrunni. En what a hek, nú fer að styttast í þetta 2 vikur og þrír dagar!

Engin ummæli: