26. júl. 2005

Ég Ég ætla bara að segja ykkur frá einni vinkonu minni sem er ótrúleg hetja. Hún á rosa veikt barn og er að fara með hana, stelpuna sína í beinmergskipti til Svíþjóðar í byrjun ágúst. Og ekki nóg með það þá er hún á steipinum líka og mun eiga sitt annað barn í svíþjóð með eldra barnið veikt. Ég ætla aldrei að kvarta aftur yfir því að ég sé ein hér og hana nú. Ég bið ykkur að senda sterka strauma til þessarar konu og fjölskyldu hennar og barnsins að sjálfsögðu.
Takk fyrir!

Engin ummæli: