6. maí 2008

Þetta viðtal birtist í Morgunblaðinu 3. maí sl.Bara svona deila því með þeim sem ná ekki mogganum...

Árborg sem hjólaborg

- Katrín Georgsdóttir er nýr sérfræðingur umhverfismála hjá Árborg -

“Sérfræðingur umhverfismála er nýtt starf hjá Árborg og er að hluta til enn í mótun. Starfið felst í að sinna verkefnum tengdum Staðardagskrá 21. Ég rýni í skipulagsmálin með tilliti til umhverfisþátta, er í samstarfi við ýmis félög sem tengjast umhverfis- og náttúrumálum og efli tengsl við íbúa sveitarfélagsins, stofnanir og fyrirtæki til þess að gera sveitarfélagið af sjálfbæru og frábæru samfélagi”, sagði Katrín Georgsdóttir, sem tók við þessu nýja starfi hjá Sveitarfélaginu Árborg 1. febrúar sl., þegar hún var spurð um nýja starfið. Katrín er fædd í Gautaborg í Svíþjóð árið 1973 og bjó þar í tvö ár eða þangað til að hún fluttist á Akranes. Faðir hennar er þaðan en móðir frá Núpi í Dýrafirði. Katrín kláraði Fjölbrautaskólann á Akranesi, fór síðan sem skiptinemi til Arnhem í Hollandi í eitt ár og kom heim. Hún staldraði ekki lengi við á Íslandi og fór aftur til Hollands, nánar tiltekið til Deventer í námi í umhverfisfræðum, sem hún kláraði á fimm árum. Í Hollandi kynntist hún eiginmanni sínum, Christian Elgaard sem er Dani og eiga þau tvær dætur, Mathildu Ásu og Reginu. Katrín ákvað að skella sér í meira nám í „Konunglega landbúnaðarskólanum á Fredriksberg“ og svo fór hún í tækniskóla og tók kúrsa í grafískri hönnun. Eftir að Katrín og Christian fluttu til Íslands hóf hún störf hjá
Vinnuskóla Reykjavíkur á umhverfissviði Reykjavíkurborgar og starfaði þar frá því í mars 2006 og þar til hún tók við nýja starfinu hjá Árborg.

Datt í lukkupottinn

“Mér finnst ég hafa hlotnast besta starfið í heiminum og algjörlega dottið í lukkupottinn með nýja starfinu í Árborg. Ég hef reyndar bara starfað í rúmlega tvo mánuði og er því bara rétt að kynnast öllum og ná tökum á fyrirliggjandi verkefnum. Það sem gerir þetta starf svo spennandi er að með ráðningunni er sveitarfélagið að setja umhverfismálin efst í stjórnsýsluna, eitt af fáum sveitarfélögum á landinu, og þar með stefnir sveitarfélagið á að vera í forystunni hvað varðar umhverfismál. Ég er að kynnast sveitarfélaginu og hef fengið að fara með ýmsu góðu fólki í skoðunarferðir og reyni eftir fremsta megni að soga til mín vitneskju þeirra og er að lesa heilan helling um Árborg og Árnessýslu. Mér hefur verið svakalega vel tekið og gengið mjög vel hingað til”, sagði Katrín um nýja starfið og hvernig það hefur gengið.

Tökum á - tökum til

Þessa dagana er sérstakt umhverfisátak í gangi sem kallast “Tökum á – tökum til”. Átakið gengur út á að hvetja íbúa og fyrirtæki í sveitarfélaginu til að taka til, ekki bara á eigin lóðum heldur huga að umhverfinu öllu í kringum sig. Starfsmenn framkvæmda- og veitusviðs keyra svo um svæðið og hirða upp garðaúrgang sem settur hefur verið út fyrir lóðarmörk. En hvernig hefur gengið að virkja íbúa og eigendur fyrirtækja í átakinu?
“Mér sýnsit það ganga ljómandi vel. Íbúar hafa tekið vel við sér og maður sér að bærinn er að lifna við eftir veturinn. Við byrjuðum átakið á föstudaginn 25. apríl með því að allir starfsmenn Ráðhússins og framkvæmda- og veitusviðs fóru út og tóku til. Við fengum líka leik- og barnaskóla með okkur í lið þennan dag og nýnemar úr Fjölbrautaskólanum tíndu rusl í nágrenni við skólann alla vikuna. Þetta var alveg frábært og maður sá árangurinn strax. Umhverfismálin byrja nefnilega alltaf fyrst hjá manni sjálfum. Best er að spyrja „hver er ég?“ Er ég týpan sem hendi rusli út um bílrúðuna til þess að einhver annar, sem fær borgað frá sveitarfélaginu, geti gengið á eftir mér með poka og tekið til eftir mig? Eða tek ég ábyrgð og hendi mínu rusli sjálf? Þetta er spurning um innri mann og hvernig samfélagi þú vilt búa í. Ég er mjög hrifin af orðatiltækinu: „hver er sinnar gæfu smiður“ og það á við umhverfismálin líka. Maður býr til sitt eigið umhverfi, umhverfið er maður sjálfur”, sagði Katrín.

Hjól í Ráðhúsið

Þegar Katrín er spurð að því hvað sé helst framundan hjá Árborg á sviði umhverfismála stendur ekki á svarinu. “Það eru bara skemmtilegir tímar framundan í Árborg. Við erum að fá hjól í Ráðhúsið sem er tilraunaverkefni þar sem starfsmenn fá afnot af hjólum til þess að fara á fundi og annað. Við erum búin að reikna það út að það tekur ekki nema 2 – 8 mínútur á hjóla í aðrar stofnanir á Selfossi. Með því að hvetja fólk til að hjóla ýtir maður undir heilbrigðari lífsstíl, minnkar mengun, minnkar slysahættu, minnkar álag á vegum og skapar betri starfsskilyrði fyrir starfsfólkið. Þannig eru starfsmenn sveitarfélagsins fyrirmyndir. Árborg er alveg frábært svæði til að hjóla á. Það er jafn flatt og Danmörk og Holland og ég hlakka mikið til að flytja og fara að hjóla daglega á ný. Svo eru endalaus önnur skemmtileg mál í deiglunni”.

Mikil möguleikar

“Árborg býður upp á svo svakalega mikla möguleika. Fjölbreytnin í samfélaginu er mjög mikil. Náttúran er mjög sterk með Ölfusá og votlendið allt um kring Flóann og stórkostlegu hraunfjörurnar. Sagan bæði jarðfræðilega og ekki síst menningarlega er ótrúlega merkileg. Val á búsetu er frábært maður getur valið um það að búa í sveit en samt í nokkurra km fjarlægð við þjónustu og verslun og líka valið fjölskylduhverfi með öllu sem því fylgir, búið við hafið í þorpum með mikla sögu og í nánd við ótrúleg náttúruöfl og fegurð og svo í miðbæ og ferðast ókeypis um í strætó. Mín framtíðarsýnin er Árborg sem hjólaborg, þar sem sjálfbær þróun er raunveruleiki en ekki lífsgæðaskerðing. Náttúran, græn svæði, göngu-, reið- og hjólastígar eru grunnurinn að öllu skipulagi. Í Árborg eru íbúar meðvitaðir um mikilvægi góðrar fyrirmyndar með ábyrgð og umhyggju gagnvart umhverfi og samfélaginu í heild. Árborg er sveitarfélag þar sem fyrirtæki eru meðvituð um endurnýtingu auðlinda, þau leggja metnað sinn í að draga úr úrgangi og hafa nýsköpun í fyrirrúmi. Árborg hefur allt það sem gefur lífinu lit”, sagði Katrín að lokum.

12 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Stórglæsilegt!

Mikið eru þau í Árborg heppin að fá þig í vinnu, Kata mín;o)

Það liggur við að mannig langi bara til þess að flytja þangað!

Bestu kveðjur
Heiðrún Hámundar

Frú Elgaard sagði...

Takk fyriri það Heiðrún mín, já Árborg er nefnilega að gera góða hluti. Þar má heldur ekki byggja hátt vegna jarðskjálfta... það finnst mér æði.

Nafnlaus sagði...

Glæsilegt! Kem og hjóla hjá þér í Árborg við tækifæri.
kv Ormurinn

Nafnlaus sagði...

þú ert bara svo smart og klár.
ég er alveg montin af þér.
knús ib

Ólöf sagði...

Vá hvað þetta er flott hjá þér:) Ótrúlega ánægð með þig skvís.

Nafnlaus sagði...

rosa flott hjá þér !!! kv. dóra

Nafnlaus sagði...

Gó Kata gó:)

Nafnlaus sagði...

Mikið er þetta flott hjá þér Kata - alveg stórglæsilegt. Þeir eru nú heppnir að hafa nælt í þig þarna í Árborg:) Gangi þér rosalega vel.
kv.

Birna

Nafnlaus sagði...

Má ég koma með til Árborgar? Vantar ekki leikara þarna? Ég skal hjóla, og passa og drekka bjór á sveitakrá með þér... :) Sakna þín og ykkar.
Love jú
Hlund

Edilonian sagði...

djösnas gella;o)

Unknown sagði...

Kata þú ert snillingur. Ég er að springa úr stolti yfir þér:-)
Knúúús Solla

Frú Elgaard sagði...

Píhí takktakk fyrir þetta elskunar og svo ætla ég að vinna markvist í því að fá alla vini mína til að flytja austur!!!! hih