21. ágú. 2006

Við héldum upp á afmæli DReginu um helgina. Það var ósköp ósköp gaman. Hún fékk fullt af gjöfum og fullt af kökum og var alsæl. Myndir af því síðar.

Á sunnudaginn fórum við svo í hjólaferð öll fjölskyldan og hjóluðum frá Suðurgötunni og út í Gróttu og svo meðfram nesinu út ægissíðuna og svo inn Suðurgötunna... ca. 11 km og lítl fjögra og hálfs árs hetja hjólaði alla leiðina með okkur á græna fína hjólinu sínu. En litla konan var líka gjörsamlega búin og sofnaði áður en kvöldmaturinn var tilbúinn og það var ekki möguleiki að vekja hana aftur. En hún vaknaði kl. 02.00 í nótt sársvög og hélt fyrir okkur vöku í lengri tíma... En engu að síður algjör hetja!!

1 ummæli:

Heiðrún sagði...

Ótrúlega dugleg. Það er hlýtur líka að vera mjög gott að vera svo þreyttur að maður sofni oní matinn sinn!