Ég er á lífi, ég lifði síðustu viku af svo er það næsta og þá eru tvær erfiðustu vikurnar í vinnuni minni búnar. Það er líka allt á haus núan. Aaaalt of mikið að gera. Kemst ekki heim á kvöldin fyrr en seint og sé börnin og manninn lítið. Mikið verður maður óskaplega pirraður á svoleiðis aðstæðum. En þetta er ekkert mál því þetta er tímabundið og þetta stendur stutt yfir. Ég skil bara ekki hvernig fólk getur lifað í svona miklu stressi og mikilli vinnu og átt fjölskyldu. Ég skil vel að fólk sem vinnur myrkranna á milli skilji. Ég ætla allavega að fara að sinna sambandinu við mannin minn í næstu viku. Þess er þörf. Það er nauðsinlegt að vera kærustupar stundum og gera allt það sem því fylgir....
það er gott að vita af þér góða.
SvaraEyðaknúsaðu stjánann þinn og látt´ann knúsa þig. það bætir hressir kætir.
Mig dreymdi Christian í nótt og fannst hann vera kominn hingað til DK, en það er víst ekki fyrr en eftir mánuð ;)
SvaraEyða