14. nóv. 2006



Ég er í skrýtnu skapi undanfarið. Geðsveiflunar eru eins og stórsjór. Búin að liggja í flensu í síðustuviku, detta á hausinn í hálku, fara í partý, vera á bömmer, fara í megrun, þrífa húsið, fá nýja nágranna og vera gjörsamlega ó-sofin.

Núna væri meiriháttar að eiga lítinn kofa við strönd sem maður gæti flúið til og sofið og safnað krafti. En kanski fæ ég kraft á föstudaginn, ég hlakka ótrúlega mikið til að fara á Sykurmolatónleikana ég ætla að syngja eins hátt og ég get.

5 ummæli:

  1. Ég held að það sé einhver geðsveifla á sveimi yfir Íslandi. Góða skemmtun á föstudaginn, hefði alveg viljað fara.

    SvaraEyða
  2. Nafnlaus2:18 f.h.

    mæli með því að fara í partý með hjálm og hóstasaft. hætta við að vera í megrun því þú ert BARA sætust og þú ert bara eh að ruglast þegar þú leyfir sveiflunum að fara hærra en þú getur hoppað.... gott tjútt á sykurmolatónleikum.. mikil öfund héðan frá kollegí....

    SvaraEyða
  3. Æi takk fyrir stelpur mínar.

    SvaraEyða
  4. Góða skemmtun í kvöld;o)

    SvaraEyða
  5. Nafnlaus5:53 e.h.

    og hvernig var svo á tónleikunum????

    SvaraEyða