8. maí 2007


Við hjónin fórum á grímuball á laugardaginn. Það var mjög skemmtilegt. Ég elska grímuböll. Ég veit ekki hvort fólk fattar búningin en getið nú... Annars fórum við svo á leiksýningu á sunnudagskvöldið og sáum Mr. Skallagrímsson. Æðislegt leikrit ég mæli með því. En um nóttina vaknaði Mathilda alblóðug og þá hafði rifnað aðeins frá sárinu og við þurftum að gista á sjúkrahúsinu þá nóttina. Konan litla er eldhress í dag og heima með pabba sínum að reyna að hamast ekki. Það er pínu erfitt fyrir hana vegna þess að hún er að fá svo mikla orku núna og borðar og borðar. En að sjá barnið alblóðugt á sunnudagsnóttina er eitthvað sem ég kem til að gleyma seint eða aldrei úff...

14 ummæli:

  1. dr house og marilyn?

    SvaraEyða
  2. mér dettur ekkert í hug, en djö eruð þið flott hahaha. Þetta hljómar nú annars ekki vel með Matthildi, guð hvað ég skil hræðsluna, úff.

    SvaraEyða
  3. Barbara Cartland og hmmm...slasaði maðurinn?

    SvaraEyða
  4. Anna nicole smith og gamli karlinn hennar, man ekki hvað hann heitir...

    SvaraEyða
  5. Einmitt Heiðrún Anna Nicole Smith og James Howard Marshall II. hehehehe

    SvaraEyða
  6. Nafnlaus11:50 e.h.

    He, he, bara snilld...þið eruð ótrúlega flott...

    ...úff ég hefði fengið nett áfall ef é hefði komið að dóttur minni alblóðugri....ég skil þetta ekki mér finnst ég verða viðkvæmari með árunum!!

    Heiðrún Hámundar

    SvaraEyða
  7. Úff það ekkert verra en þegar það er eitthvað að hjá börnunum manns. Gott að það sé allt í lagi núna.

    SvaraEyða
  8. heiðrún, þú hefðir átt að verða leynilögga.

    SvaraEyða
  9. er það of seint, heldurðu Ingibjörg?

    SvaraEyða
  10. Það er sko aldrei of seint að gerast leynilögga sko held ég ha... Inspector Olafsdottir... jamm kan vel viða

    SvaraEyða
  11. nei bara kýla á það
    beint í lögguskólann þegar heim er komið og svo bara áfram og áfram
    þar til einn daginn að þú býður okkur almúganum í veislu í tilefni þess að þú ert fyrst kvenríkislöggustjórinn.
    áfram inspector ólafsdóttir!

    SvaraEyða
  12. hei hvað er að frétta?

    SvaraEyða
  13. Nafnlaus6:29 e.h.

    Hefur ekkert gerst í lífi ykkar síðan á þessu grímuballi? Hvað hafa t.d fallegu litlu frænkur mínar verið að bedrífa? Ætla þær kannski að koma í heimsókn um helgina?

    SvaraEyða